Aðalvalmynd

Leit

Gagnasafn

Nýjast á B2.is

taka 999...Elva Rakel Sævarsdóttir

Sko, ég veit allt um það hvað ég er fucking léleg að blogga.. en fyrir þá sem nenna að kikja við annað slagið, ætla ég að reyna að skrifa smá updeit af mér og lífinu mínu:)

Ok, við erum á íslandi nuna og búin að vera síðan 3ja des.. baby var buinn að vera svo mikið veikur síðan við fluttum út.. rétt buinn að þyngjast um 1 kg á 10 mánuðum:S og okkur gekk ekki vel að fá læknishjálp fyrir hann úti þannig að við ákváðum bara að koma með hann heim til þess að fá hjálp. Og hann fer í nefkirtlatöku og rör í eyrun nuna 3ja jan.
Halli fer heim á undan okkur þar sem hann þarf að fara að vinna en við Aron förum svo 11 jan út.. en það er rétt til að pakka saman dótinu okkar og svo ætlum við baby að flytja aftur heim til íslands og fara að bua með Inz og Hektor.. En það er önnur saga.

Við erum buin að hafa það rosalega gott á klakanum.. búið að vera æði að hitta vinkonurnar og familiuna..  ég er buin að vera að vinna í leikbæ og aðeins auka í A&E lika og nóg að gera.. 
Það er nóg að gera í félagslífnu þessa dagana.. var t.d að djamma í síðustu nótt með Q. Tarantino og Eli Roth .. og nottlega þessum líka sætu vinkonum minum.. bara gaman sko! Hittum þá í VIP partyi down town og tókum þá svo með okkur á NASA og vorum í VIP inu þar.. ) En þetta var geðveikt gaman.. mar er nú nett þunnur í dag ;)

Við fórum í perluna nokkrar á jólahlaðborð MEGA gaman sko.. Slógum alveg í gegn ... lige som i fyrra.. það fer svoldið fyrir okkur stelpunum þegar við erum bunar að fá okkur í glas.. heheh En við erum svo skemmtilegar að það er sko í lagi !! 

Hver veit nema ég skrifi e-ð meira hérna inn seinna..

knus e



Allt að verða komið hjá okkurElva Rakel Sævarsdóttir

Jæja, þá erum við komin með netið heim ! Loksin .. þjónustan hérna er nu ekki upp á marga fiska.. eða það finnst okkur allavega. Það tók frá föstudegi þangað til í fyrradag að fá netið hérna til að virka.. eftir mörg samtölin við TDC. En svo loksin lentum við á gaur sem vissi hvað hann var að gera og nú erum við sem sagt orðin tengd hérna heima !

Við erum buin að hafa það ofsalega gott.. fyrir utan að hann Aron er búin að vera lasinn.. í fyrsta skipti ! og hann er nú búinn að vera mjög lítill í sér.. en þetta er allt að koma hjá honum og hann er með nokkrar kommur í dag.. ekkert til að tala um en nóg til að halda honum inni samt.

Ósk frænka ætlar að pikka okkur Irisi upp í dag og við ætlum í verslunarleiðangur, ikea og fleira.. ég þyrfti líka að kaupa göngugrind hana Aron.. svo að hann komist e-ð um .. garmurinn minnUllandi.

Veðrið er búið að vera gott síðustu daga.. sól og nice.. en í dag er heldur kaldara en síðsutu daga.. en gott er það samt !

Ég labbaði niðrí Frederiksberg centret í gær í góða veðrinu.. skoðaði í búðarglugga og allt fólkið sem var líka á röltinu.. sumar á hraðferð en aðrir eins og ég bara að skoða lífið og njóta sín.. Ég sá þetta líka flotta hjól sem mig langar í , það er bleikt og rómó.. kostar um 2999 ddk .. en þetta er lika mjög flott !! Svo verslaði ég leirtau .. fann þetta flotta tau í söstrene grene.. keypti alveg fyrir 8 manns.. það er sko von á gestum í sumar í þetta kot okkar ! Druslaðist svo með þetta í leigar heim..

Við áttu ógó kósy kvöld í gærkvöldi.. við Halli og Iris, tókum 3 myndir en ég gat nú ekki haldið mér vakandi yfir nema einni og hálfri.. svo var ég over and out ! Enda vaknar prinzinn á heimilinu alltaf um 7 á morgnana.. og við Halli lika:)

En jæja, það er best að koma sér úr nátfötunum og í e-ð annað.. og nota tímann til að taka til á meðan litli man sefur..

kiss kiss


Kongsins Köbenhavn...Elva Rakel Sævarsdóttir


Já, við erum nú komin í danaveldið..

Við hittum Irisi vinkonu á flugvellinum... og shit hvað við Halli vorum með mikinn farangur !! Við vorum með í allt 11 item.. hehe.. og vorum óvinsælasta liðið í tékk inn röðinni! En Iris sem var búin að tala mikið um hversu brjálæðislega mikið  hún væri með .. var með 2 töskur ! haha En jæja, innritunin tókst vel og við komum okkur upp og út í vél.. Aron var eins og engill alla ferðina, svaf, borðaði, drakk og lék á alls oddi! Iris svaf alla leiðina undir 3 teppum .. fannst svo kalt í vélinni en var svo auðvitað að stikkna þegar hún vaknaði.. hehe

Svo á vellinum úti þá pöntuðum við leigubíl með bílstól.. sem tók 30 mín að fá og kostaði aukalega 150 dkr. Sem okkur fannst bara ok:) Dönunum fannst við vera e-ð skrítin að vilja bíða eftir bíl með stól og borga svona mikið.. sögðu að við gætum alveg haldið á honum í litlum bíl !! GLÆTAN !!! Herru ok.. svo erum við komin í íbúðina.. eða fyrir utan hana, og við förum í að finna húsvörðin sem átti að vera með lyklana.. nema hvað! Húsvörðurinn var farin heim og við getum ekki fengið íbúðina fyrr en á morgun..

En það var svo sem allt í orden.. Steinunn frænka kom og bjargaði okkur! Nú erum við heima hjá henni í góðu yfirlæti.. Halli að elda og við píurnar allar á sófanum, hver með sinn lappara !! Litlu NÖRDARNIR!!!

Jæja, nú LOFA ég að vera dugleg.. eða duglegri að blogga fyrir ykkur.. og þið verðið kannski duglegri að commenta.. það heldur manni svoldið við efnið.. þið skiljið !! ;)

knús Elva og Co.. danaveldi !!

22 dagar... dúddírú !!Elva Rakel Sævarsdóttir

Já, tíminn líður ekkert smá hratt.

Það er komin rosa spenna í okkur öll, allt að verða tilbúið og við búin að ákveða að taka okkur bílaleigubil fyrstu 3 dagana, á meðan við verslum okkur innbú og þanngi.



Aroninn minn stækkar og stækkar, hann er að verða 7 mánaða núna 15 feb. Er orðinn 70,5 cm og 7,6 kg rúm.. hann er rosalega duglegur að borða og grautur með bláberjamauki útí og brokkolí í uppáhaldi.

Aron sem hefur aldrei viljað snuð .. tók upp á því rétt eftir 6 mánaða afmælið sitt að vilja snuð.. sem er alveg ótrúlegur munur fyrir mig. Núna get ég lagt hann niður í rúmið sitt á kvöldin, látið hann hafa snuð og kveikt a spiladósinni hans.. og hann fer bara að sofa sjálfur:) Margt fólk er voða hissa á mér að láta hann hafa snuð þegar hann er orðinn 6 mánaða.. ætti frekar a sleppa því ! Vegna þess hversu erfitt er að venja börn af því aftur... Ég hef aldrei séð fullorðna með snuð..? En þú? Þannig að ég ætla bara að fara i gegnum það þegar þar að kemur.

EN HANN ER EKKERT SMÁ MIKIÐ KRÚTT MEÐ SNUDDUNA SÍNA!!!!


knús

29 days to go..Elva Rakel Sævarsdóttir

Vá.. mar fær bara tremma við tilhuxunina að það sé svonna stutt í að við förum.. bara 29 dagar! Við erum búin að fá að vita að við þurfum að vera tilbúin með dótið okkar í gám þann 12 feb.. argggÖskrandi Það eru bara 12 dagar í það.. og ég er engan vegin tilbúin.. ekki nærri því! Ég á ennþá eftir að fara í gegnum eina gleymslu .. geymsluna sem er MEST í auðvitað og svo að ganga frá öllu sem ég er komin með hingað heim.. hér er sko ALLT Í RUGLINU !! En þetta reddast nú örugglega allt á réttum tíma.. ég hafði samt vonað að ég gæti verið svo vel undirbúin með allt að ég gæti bara chillað síðustu dagana.. en  það er nú sjaldnast þannig.. en mar vonar það besta bara .Ullandi

Ég er byrjuð í ræktinni.. finnst ég svo rosalega dugleg.. ég mæti, geng, skokka,hjóla og skíða.. í ca 40 min og svo fer ég bara heim.. voðalega sátt ! En svo er ég núna byrjuð að fara með Eddu vinkonu og nú er rútinan önnur.. nú á sko að taka á því ! Við gerum rassa, síðuspiks og handleggja æfingar og ég er svo gjörsamlega útkeyrð.. sem er auðvitað frábært.. bara öðruvísi en ég er vön ! Ég ætlaði að fara aftur í dag en komst ekki.. hafði ekki pössun. Enda ekki hægt að skilja litla mömmustrákinn minn eftir hvar sem er..ihihi

En .. já, frábært leikur í kvöld.. leiðinlegt að við unnum ekki! það munaði ekki miklu þó.. Daninir bara svo fjandi sterkir.. Við mamma vorum að fara á taugum .. hihih  En þetta var skemmtilegt!!

knús þar til seinna..

Minns á afmæli í dag...Elva Rakel Sævarsdóttir

Bara að láta ykkur vita að ég Á AFMÆLI í dag...

knús
Elvan sem er orðin 27 ára..Svalur

34 fokking dagar og svo bara.. KABÚMM köben!!Elva Rakel Sævarsdóttir

Já, við erum sem sagt bara í þessu fluttnings stússi!!

Það sem er nýtt í þessu er að Iris A vinkona ætlar að koma með okkur og búa hjá okkur framm til 1 mai, þá fer hún og leigir með Lovísu vinkonu sinni. Það er auðvitað voðalega mikill spenningur í okkur öllum. Við fáum íbúðina þá líklega 28 feb og þá er bara að drífa sig á markaðina og kaupa sófa og svonna dúllídúll til að gera krúttilegt hjá okkur Glottandi

Ég er búin að vera að græja passa fyrir Aron sem er nú varla frásögu fært. Ég fór með hann á stofu að taka mynd í passann og svo upp í borgatún að skyla umsókinni um hann. Konan á ljósmyndastofunni sagði að hún mundi senda myndina upp í borgatún .. þannig að ég fór þangað með umsókina. Ég sagði svo gjalderkanum frá að það kæmi mynd frá stofunni í tölvupósti til ap setja í passann, henni fannst voða fansy að ég hefði farið á stofu með hann en sagði að ég þyrfti samt að láta taka samanburðarmynd þarna í borgtúninu.. sem ég og gerði. Svo líða dagarnir og passinn kemur í pósti heim til okkar..
Haldiði að það hafi ekki verið vitlaus mynd í passanum ! Ekki vitlaust barn.. heldur samanburðarmyndin...!! Mín var nú ekki par glöð yfir þessu.. hringdi uppeftir og vildi fá nýjann passa þar sem ég hafi nú borgað fyrir hina myndina og haft fyrir því að fara með prinsinn á stofu. Auðvitað vildu opinberustarfsmennirnir ekkert fyrir mig gera.. nema ég mundi borga fyrir nýjann passaÖskrandi ööööö NEI! Glætan.. ég læt sko ekki ræna mig í björtu.. og hana nú!! Þannig að eftir mikið þras við þessa starfsmsnn þá fékk mín það sko loksins í geng að fá nýjann passa með réttri mynd . En ég átti bara að skutla hinum passanum til þeirra.. sem ég gerði.. nei! þá kom í ljós að ég varð að koma með Aron.. svo þau gætu tekið aðra samanburðarmynd.. !! Endalaust rugl alltaf hreint...

En allt kemur þetta á endanum.. sem slatta af þolinmæði.. heheh

knús ..

Köben baby KöbenElva Rakel Sævarsdóttir

Okey .. ég veit að þetta er orðið svoldið þreytt..altaf að skipta um blogga síður .. hehe en núna síðast þá gleymdi eg bæði notendanafninu mínu og lo.. svo að ég komst ekki inn á það til að blogga.

En ok, nýjustu fréttirnar eru að við erum að flytja til köben núna 28 feb ! Fáum afhenda lykla af íbíðunni sem við ætlum að leigja þann 1 mars Hlæjandi Við erum komin með íbúð í Frederiskberg i köpen. Hún er 3ja herbergja og 85 fermetrar, mjög fín. Hún er á annari hæð og það eru stórar svalir sem eru reyndar gleryfirbygðar en é er að vona að það sé hægt að opna gluggana vel, þeir eru alveg stórir sko. Svo fylgir þvottavél og uppþvottavél sem er nú frábært. Baðherbergið er nógu stórt til að hafa þvottavélina þar. Yfirleitt í köpen eru þvottavélar í eldhúsi þvi að þær komast ekki fyrir inn á baði. Það er parket á öllu og íbúðin er mjög opin og björt.
Þetta er í sama hverfi og frænka mín býr sem er með mann og 2 lítil börn, þannig að við verðum bara í mömmó í sumar. Spókum okkur á strikinu og svonna..Hlæjandi 
Við ætlum að "krassa" eina nótt hjá frænku minni áður en við fáum íbúðina. 
Núna erum við auðvitað á fullu í undirbúningi fyrir fluttningana. Ég fór með Aron í myndatöku fyrir passann hans.. og hann var svo sætur. Algjör prinz..! 
Svo er ég að byrja að pakka .. við þurfum að senda dótið okkur 10 dögum á undan okkur út en fáum það svo sent heim að dýrum í köben.. sem er snilldKoss

Halli er að fara í sveinsprófið núna um næstu helgi..hann á auðvitað eftir að brillera í því.. svo framnlega að hann sé vel sofinn og saddur.. ! Ullandi En hann er að vinna rosalega mikið núna og þangað til að við förum, bæði upp í samhjálp og svo í bústaðnum. En öll vinna marg borgar sig núna.. það væri glatað að fara blönk út.. hhihi .. 

Úff.. hvað það eru margir sem ég á eftir að sakna mikið..Gráta  en það er samt seinni tíma vandamál.. heheh

knús ..


Auglýsing

Klukkan

Aðrir bloggarar, My space & börnin