ers.bloggar.is
22 dagar... dúddírú !!Elva Rakel Sævarsdóttir
Já, tíminn líður ekkert smá hratt.
Það er komin rosa spenna í okkur öll, allt að verða tilbúið og við búin að ákveða að taka okkur bílaleigubil fyrstu 3 dagana, á meðan við verslum okkur innbú og þanngi.
Aroninn minn stækkar og stækkar, hann er að verða 7 mánaða núna 15 feb. Er orðinn 70,5 cm og 7,6 kg rúm.. hann er rosalega duglegur að borða og grautur með bláberjamauki útí og brokkolí í uppáhaldi.
Aron sem hefur aldrei viljað snuð .. tók upp á því rétt eftir 6 mánaða afmælið sitt að vilja snuð.. sem er alveg ótrúlegur munur fyrir mig. Núna get ég lagt hann niður í rúmið sitt á kvöldin, látið hann hafa snuð og kveikt a spiladósinni hans.. og hann fer bara að sofa sjálfur:) Margt fólk er voða hissa á mér að láta hann hafa snuð þegar hann er orðinn 6 mánaða.. ætti frekar a sleppa því ! Vegna þess hversu erfitt er að venja börn af því aftur... Ég hef aldrei séð fullorðna með snuð..? En þú? Þannig að ég ætla bara að fara i gegnum það þegar þar að kemur.
EN HANN ER EKKERT SMÁ MIKIÐ KRÚTT MEÐ SNUDDUNA SÍNA!!!!
knús
En thær sváfu líka bara med snudid... aldrei klemt fast i thær....
Fardu takmarkad eftir thvi sem adrir segja ;)